Tryggvi og Guðrún Helga eru bara á bleiku skýi þessa
dagana

Við fórum nýverið í svokallað hamingjuátak ef svo má að orði komast

Það hefur líka virkað svona glimrandi
vel. Í þessu ”átaki” felst meðal annars meiri samvera, nánd og
hressleiki.
Flestir þekkja að sjálfsögðu
eftirfarandi jöfnu:
2 x verkfræðingur = leiðindi af guðsnáð
Þ.a. við þurfum alveg að hafa fyrir því að drepa ekki hvort annað
úr leiðindum. Tökum sem dæmi hefðbundnar samræður á Oxdragargötu
4C:
Tryggvi: Hæ hæ elskan! Hvernig var
dagurinn?
GH: Hæ hæ! Bara fínn en þinn?
TI: Bara ágætur takk.
GH: Ég borðaði hádegismat með Lenu og Jacqline,
sem var fínt. Svo fór ég í verkefnavinnu með Antoni og herra Hans.
Við vorum í smá vandræðum með A-viktun á Lp hljóði sem við tókum
upp af bíl fyrir utan skólan. Já, Matlab-ið eða micinn var annað
hvort í rugli, þ.a. hljóð þrýstingurinn plottaðist ekki réttur sem
fall af tíðni og þetta var allt saman stór skrýtið.
TI: Já, undarlegt mál. Má ég kíkja á
grafið?
GH: Já, að sjálfsögðu.. hérna er
þetta...
... og svo skoðar TI og kommentar helling um
eðlisfræði hljóðbylgja..zzz
TI: Nú ert þú að verða svo mikill sérfræðingur
í hljóðfræði, ég hef verið að velta fyrir mér hvernig maður
yfirfæri hljóðþrýsting á Pa yfir í vinnu, þ.e.a.s. sem Wött. Er
yfirfærslan fall að tíðni, í Hz, eða ekki?
zzzzz..... o.s.frv.
Þið ættum núna að vera búin að gera ykkur grein fyrir vandamálinu.
Sem sagt 2 verkfræðingar geta verið
”fuck_ _ _ boring" saman komnir.
Til að komast úr þessum gír:

yfir í þennan:

tókum við uppá hressleikaátakinu. Og já... viti menn ég held við
eigum okkur smá von... erum strax orðin pínu skemmtilegra
fólk 
Annars fórum við á djammið bæði síðustu helgi og svo núna á
föstudaginn og í bæði skiptin hrikalega gaman
Núna um helgina
voru Elvar og Óskar í heimsókn í Gautaborg, þ.a. við skelltum okkur
ásamt fleiri Íslendingum á AfterWork á föstudaginn og bara mega
stuð
(After Work = frír matur á skemmtistöðum borgarinnar alla
föstudaga og áfengi einnig á tilboði)
Svo er ég byrjuð í hlaupagrúppinni hérna (Tryggvi búinn að vera í
henni í vetur) sem er algjör snilld. Við hlaupum rúma 6 km og svo
er farið í gufu og oft borðað saman eftir á. Crazy nice I must
say!!
Svo er skólinn algjörlega umfram væntingar hjá mér!!
Báðir
kúrsarnir ótrúlega fínir (ég bjóst við hinu versta af fyrri
reynslu) og ég bara hrikalega sátt. Annars kúrsinn er á sænsku og
ég er að skila af mér skýrslu á morgun á sænsku
Úje... þetta
getur maður.